Forsíða

Velkomin á sumarhusflorida.hopto.org

Einbýlishús, 210 fermetrar með 3 svefnherbergjum, á frábærum stað á Florida í Orlando til leigu í styttri eða lengri tíma. Húsið er staðsett í Ventura Country Club, svæði sem er vaktað allan sólarhringinn. Á svæðinu er 18 holu golfvöllur, golfæfingarsvæði, verslun með golfvörur, sundlaug, líkamsrækt og tennisvöllur. Þar er einnig veitingastaður sem býður upp á mat á góðu verði, bar og aðstaða til gönguferða og annarar útiveru. Hverfið er skammt frá Orlando flugvelli eða í ca.20 km. fjarlægð og 30-40 km. frá Sanford flugvelli. Sótt út á flugvöll, ef óskað er.

Ventura er mjög vel staðsett og stutt í helstu skemmtigarða í Florida t.d. Disney World , Sea World , Wet 'n Wild, Universal Studios og Kennedy Space Center.

Nóg er af verslunum í Orlando , bæði stórum og smáum, tónleikum og fjöldi veitingastaða. Hægt er að sjá íþróttaviðburði og sýningar af margvíslegu tagi í Orlando, t.d. NBA körfubolta með Orlando Magic.  Ventura Country Club, svæðið hefur marga kosti;

  • Stutt á flugvöll
  • Lokað vaktað svæði
  • 18 holu golfvöllur, ódýrt vallargjald $15-40 eftir árstíma og dagstíma.
  • Golfverslun í golfhúsi
  • Líkamsrækt í golfhúsi, gjaldfrítt
  • Veitingastaður í golfhúsi, morgunverður, hádegisverðarhlaðborð og matseðill
  • Bar í golfhúsi
  • Sundlaug við golfhús m/sólbaðsaðstöðu, gjaldfrítt
  • Tennisvöllur, gjaldfrítt
  • Golf æfingasvæði
  • Stutt í marga skemmtigarða
  • Stutt á strandir c. 30-40 mín, á Coco Beach
  • Margir veitingastaðir, tónleikastaðir, íþróttaviðburðir og verslanir í Orlando.

Sjá nánari upplýsingar um húsið á síðunni, "Húsið".

Á síðunni getur þú jafnframt fundið allt sem þú þarft að vita um húsið og það sem hægt er að gera í Orlando. "Myndir" af húsinu inni sem utan, "Áhugaverðir hlekkir" um skemmtilega staði í nágrenninu. Þarna er gluggi sem heitir "Kort og leiðbeiningar" til að auðvelda ykkur lífið, en til að spara tíma mælum við með GPS vegrata (NeverLost) í bílaleigubílinn.

Hafðu endilega samband ef það eru einhverjar spurningar með því að fara á "Hafa Samband" gluggan.